Áætlun 2011
Ferðaáætlun Ferðafélags barnanna 2011 kemur út í bæklingi sem gefin verður út og er einnig kynnt nánar hér á heimasíðunni allir.ut
Þær dagsferðir sem boðið verður upp á eru:
Barnavagnagöngur á þriðjudögum í allt sumar
Í allt sumar. Ferðafélag barnanna býður upp á barnavagnagöngur í allt sumar á þriðjudögum kl. 12.30. Lagt er af stað frá Perlunni og gengið um Öskuhlíð. Tilvalið að fá sér hressingu að lokinni gönguferð í góðum félagsskap. Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.
Berja-og föndurferð 19.-21. Ágúst
Helgarferð frá föstudegi til sunnudags í Langadal, Þórsmörk.Haustlitaferð, berja- og sveppatínsla og föndurgerð úr skógarefnum. Farið verður í leiki, gönguferðir og sagðar álfa- og tröllasögur við varðeld. Lagt af stað frá Mörkinni 6 kl. 18.00. Verð kr. 10.000 fyrir fullorðin, 5.000kr fyrir barn, fjölskylduverð kr.20.000. Innifalið: rúta,gisting og fararstjórn. Þátttakendur taka með sér nesti og góðan búnað.
Esjudagur fjölskyldunnar 28. ágúst – FÍ VISA
Boðið verður upp á gönguferðir á Esjuna í fylgd fararstjóra frá FÍ þann 28. ágúst. Mæting klukkan 13:00 á bílastæðin við Esjuna. Ferðafélag baranna býður öllum börnum ókeypis gögnuferð í grunnbúðir og 1. búðir Esju. Jarðfræðingar, sagnfræðingar og fjallafararstjórar mæta. Fjölskylduskemmtun á bílastæði við Mógilsá. Ratleikur (leitin að silfri Egils), skógarganga, umhverfisfræðsla og fleira. Boðið verður upp á fjallakákó og íslenskar veitingar. Sjá einning um Esjudaginn á www.fi.is
Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.
Vonumst til að sjá ykkur öll.
Aðventuferð í Þórsmörk 2.-4. Desember
Helgarferð frá föstudegi til sunnudags þar sem farið verður í gönguferðir og stjörnuskoðun. Aðventustemmning með jólaföndri og kvöldvöku þar sem sagðar verða hrekkjasögur af jólasveinum. Lagt af stað frá Mörkinni 6 kl. 18.00. Verð kr. 10.000 fyrir fullorðin , 5.000kr fyrir barn, fjölskylduverð kr.20.000. Innifalið: rúta,gisting,föndurefni og fararstjórn. Þátttakendur taka með sér nesti og góðan búnað.
Blysför Ferðafélags barnanna 27. Desember
Gengið frá Nauthólmsvík að Perlunni með blys. Jólasveinar verða á svæðinu.
Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.
Álfar og tröll – Vífilsfell um jónsmessu
Ferðafélag barnanna býður upp á gönguferð á Vífilsfell um Jónsmessu, föstudaginn 24 júní. Lagt af stað kl. 18 frá Mörkinni 6 á einkabílum. Álfadans og leikir, lifandi tónlist og dulúðleg stemming. Þátttaka ókeypis, allir velkomnir. Álfar og tröll mæta í gönguna, gítarspil og harmonikkuleikur.
Fjölskylduferð um Laugarveginn 19 - 23 júlí.
Fjölskylduferð um Laugarveginn í sumar. Ferðafélag barnanna býður upp á fjölskylduferð um Laugarveginn 19. - 23. júlí í sumar. Tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna með frábærum fararstjórum þeim Þórði og Fríðu.
Fararstjórar: Þórður Marelsson og Fríður Halldórsdóttir.
Fjölskylduferð um vinsælustu gönguferð landsins, gist í skálum og farangur fluttur milli staða. Fararstjórarnir halda uppi stemmingu af sinni alkunnu snilld með ýmsum leikjum, æfingum og sprelli. Tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna.
Verð: 50.000 fyrir fullorðin, kr. 20.000 fyrir börn.
Innifalið: gisting, trúss og fararstjórn.
Skráning á skrifstofu FÍ.
Leikskólagöngur á Esjuna
Júní. Ferðafélag barnanna býður leikskólum upp á gönguferð á Esjuna með fararstjórn. FB annast umsjón og skipulag með ferðinni en farið er í létta, skemmtilega gönguferð í Esjuhlíðar, farið í leiki, sungið og að lokum grillað. Verð kr. 2000 fyrir barn, innifalið, rúta, fararstjórn og grillveisla.
Fuglaskoðunarferð á Gróttu
Um miðjan maí fara allir með út að skoða fugla, telja fugla, teikna fugla og semja ljóð um fugla. Fuglafræðingar mæta og fræða þátttakendur um fuglanna.
Barnavagnavika FÍ í maí
Barnavagnavika FÍ og Ferðafélags barnanna stendur yfir 9. – 13. Maí. Þá verður gengið frá Perlunni um Öskjuhlíð. Gönguferðir með barnavagna og kerrur eru alla daga vikunnar og ávallt kl. 12.30. Gönguferðirnar eiga að vera léttar og skemmtilegar, með léttum æfingum og teygjum inn á milli, ca 90 mínútur hver gönguferð. Fararstjóri eru Auður Kjartansdóttir.









