Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ferðir 2010

Ferðaáætlun Ferðafélags barnanna og FÍ UNG 2010

 Barnavagnavika FÍ

 Barnavagnavika FÍ og Ferðafélags barnanna var haldin um miðjan maí. Gönguferðir með barnavagna og kerrur voru alla daga vikunnar og hófust kl. 12.30.

Sjá nánar >>

 Barnavagnavika-2009

 Barnavagnagöngur á mánudögum í allt sumar

Ferðafélag barnanna býður upp á barnavagnagöngur í allt sumar á mánudögum kl. 12.30. Lagt er af stað frá Perlunni og gengið um Öskuhlíð.

Sjá nánar >>

 barnavagn150

 Leikskólagöngur á Esjuna

Ferðafélag barnanna býður leikskólum upp á gönguferð á Esjuna með fararstjórn í júní. FB annast umsjón og skipulag með ferðinni.

Sjá nánar >>

 Leikskolagongur150

 Esjudagur fjölskyldunnar 12. júní - FÍ og Valitor

 Boðið upp á gönguferðir á Esjuna í fylgd fararstjóra frá FÍ. Jarðfræðingar, sagn­fræðingar og fjallamenn mæta. 

Sjá nánar >>

 Esja-150

 Álfar og tröll - Vífilsfell um jónsmessu

Ferðafélag barnanna býður upp á gönguferð á Vífilsfell um Jónsmessu, laugar­daginn 19. júní kl. 19.00. Álfadans og leikir, lifandi tónlist og dulúðug stemmning. 

Sjá nánar >>

 jonsmessa-150

 Með barnið á bakinu á Esjuna

Miðvikudaginn 23. júní kl. 15.00. Fararstjóri verður með umræðu um notkun burðarpoka fyrir börn og gengið verður um hlíðar Esjunnar með börnin á bakinu.

Sjá nánar >>

 barn-a-baki

 Fuglaskoðunarferð á Gróttu

Laugardagur 3. júlí kl. 11. Allir með út að skoða fugla, telja fugla, teikna fugla og semja ljóð um fugla. Jakob Sigurðsson frá fuglavernd mætir og bregður á leik með börnunum hvað fugla varðar, skoðar þá og telur.

Sjá nánar >>

 fuglaskodun-150

 Heiðmerkurdagurinn

Ferðafélag barnanna stendur fyrir fjölskylduhátíð í Heiðmörk laugardaginn 7. ágúst kl. 14.00-17.00. Hátíðin er haldin í þeim tilgangi að gefa börnum tækifæri til að upplifa töfra náttúrunnar og kynnast þessu stór­kostlega útivistar­svæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Sjá nánar >>

 Heiðmörk

 Laugavegurinn - fjölskylduferð

Bókunarnúmer ferðar: S-36 og S-36b
Fjölskylduferð um vinsælustu gönguleið landsins, gist í skálum og farangur fluttur á milli staða. Fararstjórarnir Þórður og Fríður halda uppi stemmningu af sinni alkunnu snilld

Sjá nánar >>

 Laugavegur

 Hornstrandir - unglingaferðir 14 - 17 ára

Nokkrir dagar í fríi frá FACEBOOK!
Fararstjórar: Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson hafa á undanförnum árum farið í ævintýraferðir bæði utanlands og innan með krökkunum sínum. Ævintýraferð fyrir unglinga.

Sjá nánar >>

 Laus-vid-facebook-150

 Unglingar á ferð og flugi. Hlöðuvík - Hesteyri

31. júlí - 5. ágúst, 6 dagar.
Unglingar í þessari ferð fá að kynnast lífi fyrri tíðar í Hlöðuvík, en einn farar­stjóranna er Hlöðvíkingur í nokkra ættliði og afi hans var síðasti ábúandinn þar.

Sjá nánar >>

 A-ferd-og-flugi

 Berja- og föndurferð 27-29. ágúst

Helgarferð frá föstudegi til sunnudags í Langadal, Þórsmörk. Haustlitaferð, berja- og sveppatínsla og föndurgerð úr skógarefnum. Farið verður í leiki, gönguferðir og sagðar álfa- og tröllasögur við varðeld.

Sjá nánar >>

 berjaferd-150

 Aðventuferð í Þórsmörk 26.-28. nóvember

Helgarferð frá föstudegi til sunnudags þar sem farið verður í gönguferðir og stjörnuskoðun. Aðventustemmning með jólaföndri og kvöldvöku þar sem sagðar verða hrekkjasögur af jólasveinunum. Lagt af stað frá Mörkinni 6 kl. 18.00. Verð kr. 10.000 fyrir fullorðinn, kr. 5.000 fyrir barn, fjölskylduverð kr. 20.000. Innifalið: rúta, gisting, föndurefni og fararstjórn. Þátttakendur taka með sér nesti og góðan búnað.  

Sjá nánar >>

 

 Blysför Ferðafélags barnanna 27. desember

Gengið frá Nauthólsvík að Perlunni með blys. Jólasveinar verða á svæðinu.         

Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.

Sjá nánar >>

 


Bolur í verðlaun

FÍ logo

Husdyragardurinn-150

Skati


Forsíða »

Ferðir

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta