Barnavagnagöngur á mánudögum í allt sumar
Ferðafélag barnanna býður upp á barnavagnagöngur í allt sumar á mánudögum kl. 12.30. Lagt er af stað frá Perlunni og gengið um Öskuhlíð. Tilvalið að fá sér hressingu að lokinni gönguferð í góðum félagsskap. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.