Barnavagnavika FÍ
Barnavagnavika FÍ og Ferðafélags barnanna var haldin um miðjan maí. Gönguferðir með barnavagna og kerrur voru alla daga vikunnar og hófust kl. 12.30. Á mánudegi var gengið frá Perlunni um Öskjuhlíð. Á þriðjudegi var gengið frá Árbæjarsundlaug, á miðvikudegi var gengið frá Gerðarsafni í Kópavogi og á fimmtudagsmorgni kl. 10.30 frá Húsdýragarðinum í Laugardal og var öllum þátttakendum síðan boðið í húsdýragarðinn að göngu lokinni. Gönguferðirnar voru léttar og skemmtilegar, með léttum æfingum og teygjum inn á milli, u.þ.b. 90 mínútur hver gönguferð.