Berja- og föndurferð 27-29. ágúst
Helgarferð frá föstudegi til sunnudags í Langadal, Þórsmörk. Haustlitaferð, berja- og sveppatínsla og föndurgerð úr skógarefnum. Farið verður í leiki, gönguferðir og sagðar álfa- og tröllasögur við varðeld. Lagt af stað frá Mörkinni 6 kl. 18.00. Verð kr. 10.000 fyrir fullorðinn, kr. 5.000 fyrir barn, fjölskylduverð kr. 20.000. Innifalið: rúta, gisting og fararstjórn. Þátttakendur taka með sér nesti og góðan búnað.