Heiðmerkurdagurinn
Ferðafélag barnanna stendur fyrir fjölskylduhátíð í Heiðmörk laugardaginn 7. ágúst kl. 14.00-17.00. Hátíðin er haldin í þeim tilgangi að gefa börnum tækifæri til að upplifa töfra náttúrunnar og kynnast þessu stórkostlega útivistarsvæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Meðal annars munu fararstjórar Ferðafélagsins vera með gönguferðir um svæðið og farið verður í ratleik. Mæting í Þjóðhátíðarlund, einkabílar. Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.