Leikskólagöngur á Esjuna
Ferðafélag barnanna býður leikskólum upp á gönguferð á Esjuna með fararstjórn í júní. FB annast umsjón og skipulag með ferðinni en farið er í létta, skemmtilega gönguferð í Esjuhlíðum, farið í leiki, sungið og að lokum grillað. Verð kr. 1000 fyrir barn. Innifalið: rúta, fararstjórn og grillveisla.