Fréttir
14 MAÍ 2012
Ferđafélag barnanna - fuglaskođunarferđ 17. maí
FERÐAFÉLAG BARNANNA
Fuglaskoðun og fjöruferð. Álftanes
17. maí. Kl. 16:00-18:00
Á Uppstigningardag fara allir út á Álftanes að skoða fugla, telja fugla, teikna fugla og semja ljóð um fugla. Fuglafræðingur fræðir þátttakendur um fugla og fjörulíf. Gott er að taka með eitthvað til að nasla í og jafnvel fötu, skóflu og stækkunargler.
Mæting: Hist á einkabílum á bílastæðinu við Bessastaðakirkju á Álftanesi kl. 16:00. Ferðin tekur um 2 klst. Óþarfi að skrá sig hjá FÍ.
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.
7 MAÍ 2012
Barnavagnagöngur 7. - 11. maí - Fyrsta ganga frá Árbćjarlaug kl. 12.15
Fyrsta gangan í barnavagnaviku FÍ 7. - 11. maí er frá Árbæjarlaug kl. 12.15 mánudaginn 7. maí. Gönguferðir fyrir mömmur og pabba með barnavagna eða kerrur. Gönguferðir í 60 - 90 mínútur í Elliðaárdal, Fossvogi, Heiðmörk, út á Gróttu með barnavagna og kerrur. Lagt af stað kl. 12.30 alla daga. Hressileg ganga með léttum æfingum, teygjum og slökun. Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.
3 JANÚAR 2012
Myndir úr ferđum Ferđafélags barnanna komnar á netiđ
Myndir úr ferðum Ferðafélags barnanna 2011 eru komnar á netið hægt er að skoða þær hér





