Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Leikir í náttúrunni

Börn eru ótvíræðir meistarar í að búa til skemmtilega leiki úti í náttúrunni og þau þurfa sjaldan hjálp frá fullorðnum við það. Þvert á móti hefur „hjálp" hinna full­orðnu heftandi áhrif fremur en hvetjandi. En stundum er sú staða uppi að fullorðnir þurfa að hafa aðkomu að leikjunum. Til dæmis þegar hópur er að koma saman í fyrsta skipti. Þá er mikilvægt að fullorðnir stuðli að því að leikföngum og hlutverkum sé jafnt skipt. Og það allra mikilvægasta er að það hefur mikla þýðingu fyrir börnin að hafa fullorðna með sér.

Hér eru hugmyndir að nokkrum leikjum: 

Finna sem flesta hluti/plöntur og annað sem byrjar á S eða B. Þetta er hægt að  gera bæði sem liða- eða einstaklings­keppni. Hvert lið (eða barn) finnur hluti í náttúrunni sem byrja á S eða B. Hver getur safnað flestu á 5 mínútum? 

Eftirhermuleikir
Mörgum börnum finnst gaman að herma eftir dýrum.  Börnin standa á móti hvort öðru, tvö og tvö saman, herma eftir dýrum og svo á hitt að geta hvaða dýr það er. Þessi leikur æfir börnin í tvennu: að þekkja og herma eftir dýrahljóðum og að vera góð í að geta uppá hljóðunum. Ef leikurinn á að vera hluti af keppni, þá er hægt að hafa tímatakmörk og börnin vinna sér inn „stig". 

Þrautastígur/braut
Þegar þrautastígur er skipulagður þarf að taka mið af aldri barnanna, árstímanum, nánasta umhverfi og hvort brautin eigi að snúast um ákveðið þema. Smábörnin geta haft gaman af því að taka þátt í þrautastíg.

  1. Þrautirnar geta til dæmis verið:
  2. Finna ákveðin skordýr.
  3. Finna tvö blóm eða ber (af mismunandi tegund).
  4. Finna þrjú ólík laufblöð. Finna börk eða kvist af sex ólíkum trjám o.s.frv.
  5. Finna fjóra köngla/skeljar/kuðunga.
  6. Finna fimm ólíka steina (slétta, kringlótta, flata, o.s.frv.)

Það getur verið sniðugt að hafa viðurkenningarskjal sem sönnun þess að allar þrautirnar hafi verið leystar.

Einbeitingar- og skynjunarleikir
Það búa ekki allir yfir forvitni og ímyndunarafli til þess að þekkja lykt, hljóð og bragð og „leika sér með" náttúruna. Hér á eftir eru nokkur dæmi um leiki sem örva getu barnanna til að taka eftir hlutum í náttúrunni og setja upplifun sína af náttúrunni í samhengi. Þessa leiki er líka hægt að stunda á veturna.  

Sjón - finna aftur sitt tré
Skiptið hópnum í tvo og tvo. Bundið er fyrir augun á öðrum en hinn leiðir. Sá sem sér leiðir hinn þvers og kruss um svæðið og nemur staðar við tré. Sá „blindi" þreifar vandlega á trénu. Svo er hann leiddur sömu leið aftur á byrjunarstaðinn. Þá er hulan tekin af augunum og sá á að finna leiðina að trénu og benda á það.  Svo er skipt um hlutverk.  

Heyrn - hlustað á þögnina
Hér er best að skipta hópnum niður þannig að tveir eða fleiri séu saman og að  einn fullorðinn sé með hverjum hóp. Takið með eitthvað til þess að sitja á. Hóparnir dreifa sér um svæðið og finna friðsæla staði þar sem gott er að setjast niður.

Svo loka allir augunum og munninum og hlusta:

  • Hvaða hljóð heyrir þú í náttúrunni og hvað geta þau sagt okkur?
  • Hvaða hljóð heyrir þú frá öðrum stöðum? Hvaða hljóð heyrðir þú fyrst?
  • Hvaða hljóð koma frá okkur sjálfum? Tókstu eftir ýmsu sem þú þekktir ekki?
  • Hvaða hljóð eru lág og hver eru sterk og hávær?
  • Hvað eru góð hljóð og hvaða hljóð eru óþægileg og skerandi?
  • Reyndu að afmarka lágværu hljóðin og hlustaðu bara eftir þeim.

Lykt
Látið börnin loka augunum og einbeita sér að því að finna og greina ýmsa lykt, s.s. af greinum, trjám, jarðhita, regni, strönd, grasi, mýri, hesti, hundi, ketti, rollum o.s.frv. Einnig er hægt að láta börnin finna lykt af ýmsu með bundið fyrir augun og þau geta hvað það er.  

Minnisleikur
Tíu hlutir úr náttúrunni eru settir fyrir framan þátttakendurna. Svo snúa þeir sér við og einn hlutur er fjarlægður. Hvaða hlutur? Önnur aðferð: börnin leggja á minnið hvaða hlutir eru settir fram. Hversu marga hluti geta þau munað? 

Hreyfiskynjun - að hreyfa sig „blindur"
Allir í hópnum leiðast og mynda langa röð, loka augunum fyrir utan þann fremsta.  Forystumaðurinn leiðir hópinn vítt og breitt um svæðið, yfir ójöfnur og breytilegt landslag. Hvernig bregðast líkaminn og fæturnir við þessu?  

Kort
Notið gjarnan kort af næsta nágrenni sem krakkarnir hafa tekið þátt í að teikna. Skiptið krökkunum niður í hópa. Merkið inn áfangastaði á leiðinni sem farin er á kortinu. Þátttakendurnir fá kortið, finna áfangastaðina, svarar spurningum/gátum um hvaða myndir eða bókstafi þau sjá, og koma svo til baka á byrjunarreitinn.  Svo fá þau kortið aftur með nýjum áfangastað. Staðsetjið áfangastaðina helst þannig að börnin þjálfist í að fylgja ákveðinni leið, stíg eða árbakka o.s.frv. á leiðinni.  

Fjársjóðsleit
Ákveðið byrjunarreit. Búið til skriflega lýsingu á því hvar fjársjóðurinn er falinn, s.s. 2 skref suður, 3 skref vestur o.s.frv.  Það er líka hægt að fara í fjársjóðsleit með kort þar sem krakkarnir merkja inn samkvæmt lýsingunni. Þetta getur farið vel saman við ýmsa leiki í grennd við fjöruna eða sjóinn.



Bolur í verðlaun

FÍ logo

Husdyragardurinn-150

Skati


Forsíða »

Fræðsla » Leikir í náttúrunni

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta