Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Tillögur að ferðalögum

Tjaldferð

Við sem fórum í tjaldferð sem börn erum sammála um að það eftirminnilegasta var að setja upp tjaldið og svo gistingin sjálf yfir nóttina. Tjaldferð er góð leið til þess að fá krakkana til þess að taka þátt, t.d. með því að hjálpa til við að tjalda og setja upp eldstæði.  

Hjólaferð

Því ekki að upplifa nágrennið á reiðhjóli? Hér er að sjálfsögðu nauðsynlegt að velja leið sem er laus við bílaumferð.  Mikið af brekkum getur einnig verið erfitt fyrir börn. Þau reyna að bjarga sér sjálf, en gætu þurft að leiða hjólið meira en þeim líkar. Ákveðinn áfangastaður er mikilvægur í svona ferð. Þannig þurfa ekki allir að hjóla saman í einum hóp heldur geta komið í „mark" á mismunandi tíma eftir mis­munandi getu þeirra.

Á að fara í ferð með lítil börn? Þá er gott að hafa samband við hjólaverslanir og athuga með sérstök barnasæti fyrir hjól eða þar til gerða vagna.  

Tunglskinsferð

Best er að fara í tunglskinsferð um svæði sem fararstjórinn þekkir vel.  Á veturna eru snjórinn og máninn næg lýsing. Reynið að sjá út eins margar myndir úr stjörn­unum og þið getið og finnið pólstjörnuna. Hvar er Karlsvagninn og Orion? Hvaða sögupersónur er hægt að tengja við myndirnar sem þið hafið séð á himninum?  Verið einnig kyrr í augnablik til þess að horfa eftir tunglskininu í snjónum.  

Gott er að enda ferðina á því að fá sér heitt kakó, draga fram súkkulaði eða grilla pylsur eða ostasamloku yfir heitum kolum.  

Veiðiferð

Veiði er hægt að skipuleggja sem sérstaka ferð eða þá sem afþreyingu í stærra ferða­lagi þegar gist er. Það getur verið sniðugt að taka með háf, fötu og stækkunar­gler ef einhver fær leið á því að láta reyna á heppnina í veiði. Veiðist vænn fiskur er upplagt að gera að honum og borða á staðnum. Veiðiskapur þarf hvorki að vera dýr né flókinn.

Góð ráð þegar maður fer að veiða með  börnum:

Reynið eftir fremsta megni að veiða fisk! (þótt ekki sé um annað að ræða en síli eða aðra smáfiska).

Notið einfaldar veiðiaðferðir (ekki notast við sökkvandi agn eða flugu með lítil börn).

Meðhöndlið fiskinn rétt. Allan aflann á að hreinsa, elda og borða.

Fjallaferð

Börnum, óháð aldri, líkar að fara í fjallgöngu. Fjölbreytileiki fjallsins, frá rótum til topps, gefur færi á spennandi og margvíslegri upplifun. Byrjið gönguna við fjallsræturnar. Þar gengur maður oft í gróðri sem teygir anga sína upp eftir fjallinu og getur fylgst með fjölbreyttu dýralífi. Börnin venjast fjalllendinu á leiðinni upp og þjálfast í hreyfingum sem nýtast þegar hærra er komið. 

Þemaferðir

Þemaferðir eru yfirleitt dagsferðir sem snúast um ákveðið viðfangs­efni eða tilgang. Hér að neðan eru dæmi um ólík viðfangsefni og þarf bara að fylla inn í með eigin hugmyndum eftir því sem aðstæður leyfa. Sveppatínsla, berjaferð, ratleikur - með eigin kort, Tarzan í skóginum, í spor villtra fugla, fuglasöngsferð, stjörnu- og tunglskinsferð, ferð til að sjá sólina koma upp, fjöruferð, hestaferð, klifur- og hellaferð, ferð um árbakka, snjóferð - byggja snjóhús, gera snjókarla o.fl., snjóhellis­ferð, bestu-foreldrar-ferð, jólaföndurferð - sem til dæmis byrjar eða endar með ferðalagi.

Hversu langt geta börnin gengið?

Hversu langt börn geta gengið fer eðlilega eftir nokkrum þáttum; aldri, líkamlegri hreysti, reynslu og þjálfun og ekki síst þeirri hvatningu sem fullorðnir leggja til.  Almennt séð er betra að stoppa og hvíla oftar til að upplifa náttúruna í meira návígi. Í lengri ferðum er upplagt að fara í stuttar ferðir út frá tjaldbúðunum. 

Í Ferðafélagi barnanna á að vera gaman að fara í ferðalag og jákvæð hvatning er mikilvæg í því sambandi.

Í leiðarlýsingum FÍ er tímalengd miðuð við fullorðna. Þess vegna er mikilvægt að aðlaga alltaf ferðina að börnunum svo þau geti farið hana án of mikils álags. Þumalputtareglan er að deila tímalengdinni með tveimur.  



Bolur í verðlaun

FÍ logo

Husdyragardurinn-150

Skati


Forsíða »

Fræðsla » Tillögur að ferðalögum

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta