Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Útbúnaður / klæðnaður

Til þess að koma í veg fyrir að manni verði kalt er nauðsynlegt að halda sér þurrum.  Vatn leiðir kulda þrisvar sinnum meira en loft. Það er því mikilvægt að reyna að  halda sér þurrum. Börn þola minni kulda en fullorðnir, en verður aftur á móti fljótt heitt þegar þau hreyfa sig. Það getur líka verið erfitt að sjá hvort þeim er kalt, of heitt eða eru vot. Því er mikilvægt að fylgjast vel með líðan þeirra og ekki taka einungis mið af því hvernig manni sjálfum líður. Og það þarf líka að fylgja því eftir hvenær á að klæða þau úr og í á meðan á ferðinni stendur.

Hlý undirföt á köldum dögum
Ullin verður sjálf hlý þótt hún sé vot. Það er því mikilvægt að hún sé innst við líkam­ann (t.d. þunnur ullarbolur, þunnir ullarsokkar). Í dag er hægt að fá ullarföt sem klæjar ekki undan og má þvo í þvottavél. Það er gott að láta börnin nota síðar ullar­buxur þegar þau eru á ferðalagi. 

Peysur
Auka flís- eða ullarpeysa í bakpokanum er nauðsynleg ef maður situr kyrr lengi.  Að öðru leyti er betra að klæða sig í fleiri þunn lög heldur en eitt þykkt. Loft milli fatalaganna heldur hita og það er miklu auðveldara að stjórna líkamshitanum með því að geta farið úr og í mismunandi flíkur.  

Ytri föt
Vindþétt föt eiga alltaf að vera með í för, gjarnan með hettu. Þetta gildir bæði um vetur sem sumar.  Börn ættu að nota regngalla eða kuldagalla. Reyndar geta mjög þykkir og hlýjir gallar hentað illa á skíðum. Vindþéttur fatnaður eins og jakki og buxur henta betur. Barnið getur stjórnað hitanum með því að bæta við eða fjar­lægja þynnri lög undir jakkanum. Hlýir sokkar og hanskar eru nauðsyn­legir ef vera á lengi úti í snjó. Fötin eiga að vera þægileg þó þau verði blaut.

Bakpoki
Börnum finnst mikið sport að fá að hafa sinn eigin bakpoka. En reiknið með að það verði ekki svo mikið sport alla ferðina!  Þess vegna á bakpokinn þeirra að vera sem léttastur, helst bara með nesti. Börn undir 8 ára eiga ekki að bera meira en sem nemur 1/10 af þyngd þeirra. Sokkar og vettlingar eiga að vera í plastpoka í bakpokanum svo þeir haldist þurrir. Og börnin eiga skilið að hafa bakpoka sem er með góðri einangrun og rennilásum.  

Skór, skíði og stafir
Skíðaútbúnaður þarf ekki endilega að vera nýr af nálinni.  Athugið skiptimarkaði og það sem er til sölu notað til þess að gera góð kaup á slíkum útbúnaði.  Börnin eiga að vera í skíðaskóm sem eru þægilegir og það rúmir að þau komist í þá í hlýjum ullarsokkum. Skíði og stafir eiga að vera í samræmi við hæð þeirra. Barnaskíði eiga að vera með sveigju (mjórri í miðjunni) og það mjúk að það sé hægt að ýta þeim saman með þumalfingri og löngutöng. Það gefur þeim betri festu í brekkunni. Skíðin eiga að vera breið og ekki mjórri en hællinn á skónum. Almenna reglan er að lengd skíðanna á að vera svipuð og hæð barnanna, en þriggja til fjögurra ára börn geta verið á styttri skíðum. Stafirnir eiga að bera við öxlina, vera með rúnnaðan odd og ólar sem hægt er að lengja/stytta.

Ef skór eru blautir er gott að setja plastpoka yfir þurra ullarsokka svo þeir haldist þurrir. Aftur á móti myndast að lokum raki innan í plastpokunum þar sem þeir hleypa engu í gegn. Þannig að það er ekki lausn til langs tíma.  

Sólgleraugu og sólarvörn
Sólgleraugu með vörn gegn útfjólubláum geislum eru mikilvæg, líka fyrir börn.  Festið þau í bandi um hálsinn svo þau týnist ekki. Gott er að hafa sólarkrem með hárri vörn meðferðis, bæði í vetrar- og sumarferðir. Líka í skýjuðu veðri á fjöllum - þá þarf maður líka að bera vel á nefið og kinnarnar!  Ef það er mjög kalt getur sérstakt kuldakrem varnað því að börnin fái kalsár á kinnarnar.  

Pökkunarráð
Pakkið öllu sem ekki má blotna í plastpoka ofan í bakpokann. Hutirnir sem eru minnst notaðir eiga að vera neðst.

Viðgerðarútbúnaður
Hlutirnir bila stundum eða detta í sundur á ferðalögum. Þess vegna er gott að hafa meðferðis þunnan stálþráð, sterkt lím, auka reimar, band, límband, öryggisnælu o.s.frv. Hnífur á alltaf að vera með og einnig eldspýtur. 

Útbúnaðarlisti

Kæðnaður fyrir börn og fullorðna:

  • Undirföt
  • Nærbuxur
  • Ullartreyja
  • Ullarbuxur
  • Ullarsokkar
  • Þunn peysa
  • Ullarpeysa
  • Flíspeysa
  • Göngubuxur
  • Göngusokkar
  • Ullartrefill
  • Ullarvettlingar + vindheldir vettlingar
  • Ullarhúfa
  • Legghlífar
  • Hlífðarföt
  • Gönguskór

Fyrir börnin og sjálfan sig ættu fullorðnir að hafa:

  • Svefnpoka
  • Auka undirföt (þunna ullar­treyju/buxur)
  • Auka peysu
  • Auka sokka (ullarsokka/göngusokka)
  • Stuttbuxur
  • Inniskó/íþróttaskó
  • Regnföt
  • Þykka ullarpeysu
  • Húfu, vettlinga, trefil
  • Snyrtidót (+plástra, hælsærisplástur, sótthreinsi­spritt)
  • Handklæði
  • Klósettpappír
  • Sólgleraugu og sólarvörn
  • Flugnanet
  • Hitabrúsa
  • Nesti, ávaxtasafi (þykkni), og e.t.v. rúsínur, hnetur, súkkulaði saman í poka
  • Félagskort í FB
  • Peninga
  • Eldspýtur og kerti
  • Hníf
  • Kort og áttavita
  • Skóflu (sem hægt er að leggja saman)
  • Neyðarhjálp
  • Höfuðljós
  • Lykla að skála/bústað
  • Skóhlífar/pokar fyrir fætur

Í pokanum hjá barninu

Ef barnið á að bera bakpoka á innihaldið að taka mið af aldri barnsins. Kannski á barnið bara að bera sinn eigin nestispakka/hitabrúsa?

Útbúnaður þegar gista á í tjaldi að sumarlagi

Notið eftirfarandi lista til viðmiðunar og aðlagið eftir atvikum:

  • Tjald
  • Undirlag (dýna, teppi)
  • Eldunarútbúnaður
  • Vasaljós/höfuðljós
  • Mataráhöld: stóran pott, djúpa skál, hníf og skeið
  • Kvöldmat að skapi barn­anna.
  • Brauð og álegg
  • Plastpoka fyrir mat og plastpoka fyrir rusl

Tillögur að mat í tjaldferðalagið

  • Hrökkbrauð/brauð
  • Hafrakex
  • Smjör
  • Kaffi, te
  • Bolladrykki (kakó, bolla­súpu)
  • Haframjöl
  • Rúsínur
  • Sykur
  • Salt og pipar
  • Kartöflumús með mjólkur­dufti
  • Pylsur


Bolur í verðlaun

FÍ logo

Husdyragardurinn-150

Skati


Forsíða »

Fræðsla » Útbúnaður / klæðnaður

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta