Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Fréttir Allir út

Fréttir Allir út - RSS

3.1.2012

Myndir úr ferđum Ferđafélags barnanna komnar á netiđ

Myndir úr ferðum Ferðafélags barnanna 2011 eru komnar á netið hægt er að skoða þær hér

1.11.2011

Ađventuferđ í Ţórsmörk 2.-4. Desember


Helgarferð frá föstudegi til sunnudags þar sem farið verður í gönguferðir og stjörnuskoðun. Aðventustemmning með jólaföndri og kvöldvöku þar sem sagðar verða hrekkjasögur af jólasveinum.
Lagt af stað frá Mörkinni 6 kl. 18.00.

Verð kr. 10.000 fyrir fullorðin , 5.000kr fyrir barn, fjölskylduverð kr.20.000. Innifalið: rúta,gisting,föndurefni og fararstjórn. Þátttakendur taka með sér nesti og góðan búnað.

1.11.2011

Blysför Ferđafélags barnanna 27. Desember

Gengið frá Nauthólmsvík að Perlunni með blys. Jólasveinar verða á svæðinu.

Þátttaka ókeypis, allir velkomnir. Nánar auglýst síðar.

1.11.2011

Viltu stofna deild í Ferđafélagi barnanna á ţínu svćđi ?

Markmið Ferðafélags barnanna er að hvetja börn og foreldra til að njóta útiveru og náttúru.  Jafnframt að leiðbeina um búnað, öryggismál og fleira sem þarf að hafa í huga þegar ferðast er um náttúru landsins.  Ekki síst að leika sér og hafa gaman saman.  Ef þú hefur áhuga á að stofna deild í Ferðafélagi barnanna á þínu svæði og standa fyrir skemmtilegum fjölskyldugöngu á þínu svæði þá veitir skrifstofa FÍ aðstoð.

1.11.2011

Ferđafélag barnanna

Ferðafélag barnanna var stofnað árið 2009 að fyrirmynd norska Ferðafélagsins DNT. Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að hlúa að heilbrigði og virkni allra barna og fjölskyldna og með stofnun Ferðafélags barnanna leggur Ferðafélag Íslands sitt lóð á vogarskálarnar. Með þessu nýja félagi verður lögð áhersla á að bjóða upp á ferðir og uppákomur á forsendum barnanna með það fyrir augum að víkka sjóndeildarhring þeirra og upplýsa um heilbrigða lífshætti úti í náttúrunni.

24.7.2011

Esjudagur FÍ og Valitors

Sunnudaginn 28. ágúst verður Esjudagur FÍ og Valitors haldin. Ferðafélag barnanna býður öllum börnum í ókeypis gönguferð. Jarðfræðingar og sagnfræðingar mæta. Fjölskylduskemmtun á bílastæði við Mógilsá.

Þáttaka ókeypis og allir velkomnir.

5.7.2011

Laugarvegurinn - frábćr ferđ - nćsta ferđ í Ţórsmörk

Ferðafélag barnanna er nýkomið úr ferð um Laugaveginn.  Ferðin tókst mjög vel, veðrið lék við börn og fullorðna í ferðinni, farið var í leiki, slegið upp kvöldvökum, sungið og sprellað og varðeldur lokakvöldið.  Fararstjórar voru þau Eva og Daníel, sem meðal annars eru umsjónarmenn Útivistarskólans á Gufuskálum.   Næsta ferð Ferðafélags barnanna er berja- og föndurferð í Þórsmörk 19.-21. ágúst.  Skráning á skrifstofu FÍ.

20.6.2011

JÓNSMESSUGANGA - 24 júní

Ferðafélag barnanna býður upp á gönguferð á Vífilsfell um Jónsmessu, föstudaginn 24 júní. Lagt af stað kl. 18 frá Mörkinni 6 á einkabílum.

Álfadans og leikir, lifandi tónlist og dulúðug stemming. Gítarspil og harmonikkuleikur. Allir að mæta vel klæddir því það getur orðið kalt upp á fjalli.

Þáttaka ókeypis, allir velkomnir

14.6.2011

Esjudagur fjölskyldunnar - FÍ Valitor Visa

Áður þurfti að fresta Esjudeginum vegna þess að veðurguðirnir voru okkur ekki hliðhollir en nú er komin ný dagsetning. Esjudagurinn verður haldin 28 ágúst með sömu dagskrá og áður var auglýst.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest.

14.6.2011

Álfar og Tröll - Vífilfell um Jónsmessu.

Ferðafélag barnanna býður upp á gönguferð á Vífilsfell um Jónsmessu, föstudaginn 24 júní. Lagt af stað kl. 18 frá Mörkinni 6 á einkabílum. 

 Álfadans og leikir, lifandi tónlist og dulúðleg stemming.  Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.



Forsíđa »

Fréttir

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta