Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir Allir út

Fréttir Allir út - RSS

10.8.2010

Heiðmerkurdagurinn

Síðastliðinn laugardag fór fram Heiðmerkurdagur Ferðafélags barnanna og Arion banka. Dagurinn fór vel fram og skemmtilegt var að sjá bæði unga sem aldna leika sér í fótbolta, snúsnú, fara í ratleik og margt fleira.

Grænmeti var til sölu á staðnum frá sölufélagi íslenskra garðyrkjumanna á góðu verði og haldið var íslandsmeistaramótið í gúrkuáti sem fór vel fram og var mikil þátttaka í það.

Ingó Veðurguð mætti og hélt uppi fjörinu, söng og trallaði með krökkunum við góðar undirtektir.

Við þökkum öllum þeim sem mættu fyrir góðan dag!



Forsíða »

Fréttir

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta